Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1492525064.93

    Tjónamat og útreikningar
    BVTM3TÚ03
    8
    Tjónamat
    tjónamat, útreikningar
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Fjallað um mat á skemmdum eða öðru tilefni til viðgerða. Farið ýtarlega í notkun tjónamatskerfisins CABAS og gerðar æfingar í notkun þess. Gerðar verklegar æfingar í notkun einingakerfis fyrir málun. Nemendur þjálfi sig í notkun eyðublaðaforma og geri kostnaðarútreikninga. Eyðublöð fyrir Cabas um tjónamat endanlega útfærð og kostnaður reiknaður út eftir því sem við á hverju sinni. Gerðar vinnu- og efnisáætlanir á grundvelli mats. Gerðar tímaáætlanir vinnuþátta og magnáætlanir efnisþátta en auk þess útreikningar á þyngd efnis í smíðaverkefni. Útreikningar vegna tjónamats og verkáætlana með ummáls-, flatarmáls-, rúmmáls-, efnisþunga- og efnismagnsreikningi. Kostnaðarreikningur verka og mat á umfangi tjóna og smíðaverkefna. Útreikningar gerðir bæði fyrir viðgerða- og smíðaverkefni. Áhersluatriði í kennslu: Áhersla á að matsmenn tileinki sér ábyrgð, nákvæmni og hlutlægni í starfi og hafi góða yfirsýn yfir verkefnið. Við mat sé þess gætt að fara eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • aðferðum sem notaðar eru við tjónamat og kostnaðarútreikninga
    • tjónamatskerfinu CABAS
    • kröfum um ástand ökutækja í reglugerð um gerð og búnað
    • réttindum sem einingakerfið veitir og skyldum sem fylgja notkun þess
    • gerð vinnu- og efnisáætlana á grundvelli mats
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leggja mat á tjón á ökutæki samkvæmt tjónamatskerfinu CABAS
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lýsa uppbyggingu einingakerfisins og þýðingu þess sem grundvöll kostnaðarútreiknings verðlagningar í málun ökutækja
    • gera grein fyrir meðferð og notkun einingakerfis fyrir bílamálun
    • útfylla helstu eyðublöð og reikningsform sem eru í notkun á hverjum tíma
    • sýna að hann kann skil á meðferð skjala sem notuð eru við tjónamat og kostnaðarútreikninga
    • sýna að hann þekki þær kröfur sem framleiðendur ökutækja gera til viðhalds og viðgerða eftir tjón
    • lýsa skipulagi vinnu og gerð kostnaðaráætlana bæði hvað varðar ökutækjatjón og smíðaverkefni
    • áætla vinnutíma einstakra verkþátta, reikna út magn efnis og kostnað vegna efnisþátta
    • gera útreikninga vegna þyngdar og magns efnis til smíða eða viðgerða
    Skriflegt mat 30%. Verklegt mat 50%. Ástundun 20%.