Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1495022487.03

    Tölvutækni - talnakerfi og rökrásir
    KEST1TR05(AU)
    1
    Kerfisstjórnun
    Tölvutækni - talnakerfi og rökrásir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    AU
    Nemendur læra um mismunandi talnakerfi, lógískar aðgerðir og grunnatriði í Linux stýrikerfinu.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi talnakerfum.
    • grunnaðgerðum í rökfræði: AND, OR og NOT.
    • Boolean reikniaðgerðum.
    • Linux sem stýrikerfi.
    • vali á stýrikerfi.
    • opnum hugbúnaði og hugbúnaðarleyfum.
    • grunnatriðum skrifta í Linux.
    • gagnageymslu í Linux.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • flytja tölur milli talnakerfa: tvíunda-, sextánda- og tugakerfa.
    • gera sannleikstöflu fyrir einfaldar rökrásir.
    • nota Boolean algebra.
    • vinna með Linux.
    • vinna með grunnaðgerðir í skipanalínu.
    • vinna með mismunandi gerðir notenda.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota tvíunda- og sextándatölukerfi.
    • tengja saman rökrásir og Booleanjöfnur og teikna einfaldar rökrásir.
    • leita sér aðstoðar í Linux.
    • vinna með skrár og möppur í Linux.
    • vinna með leit.
    • stilla Linux tölvu á staðarnet.
    • búa til notendur og hópa.
    • vinna með skráaréttindi.
    Símat.