Í áfanganum eru grunnatriði vefforritunar kynnt. Farið er í miðlara/biðlara uppbyggingu vefsíðna, samskipti þeirra og hlutverk hvers hluta. Nemendur vinna að smíði vefja með miðlaramáli. Lögð er áhersla á málfræði og endurnýtni á kóða í gerð vefja.
VEFÞ1VG05AU
FORR2FA05BU
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
miðlara/biðlara uppbyggingu vefsíðna, samskiptum þeirra og hlutverkum hvers hluta.
HTTP-samskiptareglum.
einu miðlaramáli.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
grunnatriðum vefforritunar.
vinna með miðlaramál.
vinna að einföldum vef með miðlaramáli.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota forritunarmál á miðlara.
þróa einfaldar veflausnir sem innihalda ívafsmál, stílsíðu og miðlaramál.