Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496229300.06

    Algebra
    STÆR1AL05(MA)
    63
    stærðfræði
    algebra
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    MA
    Meginefni áfangans er talnareikningur, hlutföll, einingaskipti, prósentureikningur, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur hornaföll og margliður. Aðaláhersla áfangans er á þjálfun í dæmareikningi úr þessum efnisatriðum.
    Forkröfur: Grunnskólapróf með einkunn C eða hærra
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
    • hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
    • frumtölum og frumþáttun
    • liðun, þáttun og bókstafabrotum
    • veldum, rótum, velda- og rótareglum
    • jöfnum af fyrsta og öðru stigi auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
    • hornaföllum
    • stigi, stuðlum, reikniaðgerðum og núllstöðvum margliða
    • notkun algengra stærðfræðitákna s.s jafnaðarmerkis og sviga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
    • frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
    • einfalda brot og brotabrot
    • liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
    • nota rætur og brotna veldisvísa
    • beita velda- og rótarreglum
    • leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
    • skipta milli algengra eininga
    • nota reglur um prósentu- og vaxtareikning
    • nota hornaföll til að finna horn og hliðar í þríhyrningum
    • finna núllstöðvar margliða og þátta annars stigs margliður og einfaldar þriðja og fjórða stigs margliður
    • nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
    • vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
    • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
    • beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir úr kunnuglegu samhengi, m.a. með því að setja upp jöfnur
    • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.