Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496229969.8

    Algebra
    STÆR2AL05(MA)
    68
    stærðfræði
    algebra
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    MA
    Helstu efnisþættirnir eru talnareikningur, prósentureikningur, mengjaaðgerðir, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, lograr, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur, talnalínan, algildi og bil á talnalínu. Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.
    Grunnskólapróf með einkunn B eða hærra
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
    • hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
    • mengjum og mengjaaðgerðum
    • frumtölum, frumþáttun, deilingu með afgangi, stærsta samdeili og minnsta samfeldi
    • liðun, þáttun og bókstafabrotum
    • veldum, rótum, logrum, velda-, róta- og lograreglum
    • jöfnum af fyrsta og öðru stigi auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
    • algildum og algildisjöfnum
    • talnalínunni, bilum og hnitakerfinu
    • notkun algengra stærðfræðitákna s.s. jafnaðarmerkis og sviga
    • skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
    • nota mengjaaðgerðir
    • frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
    • einfalda brot og brotabrot
    • liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
    • nota algildi, rætur, brotna veldisvísa og logra
    • beita velda-, rótar- og lograreglum
    • leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
    • finna færslu á talnalínu og fjarlægð og miðpunkt á talnalínu og í hnitakerfi
    • nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
    • beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir, m.a. með því að setja upp jöfnur
    • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
    • fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.