Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496309048.58

    Almenn eðlisfræði sérnám
    EÐLI1AL02
    4
    eðlisfræði
    Almenn eðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Nemendur skilji og upplifi hvernig eðlisfræðin er allt í kringum okkur í daglegu lífi. Reynt er að ýta undir skilning þeirra á ýmsum einföldum eðlisfræðilegum fyrirbærum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum eðlisfræðinnar
    • þrýstingi
    • þyngdarkrafti
    • hraða
    • vatnsdrægni pappírs
    • eðlismassa
    • spennu
    • ljósi
    • hljóði
    • rafmagni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja einföld fyrirmæli í eðlisfræðitilraunum
    • gera einfaldar tilraunir í eðlisfræði
    • skýra út munnlega eða skriflega hverja tilraun fyrir sig eins og kostur er
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja einföld eðlisfræðileg fyrirbæri
    • skilja hvernig eðlisfræðin er að verki í daglegu lífi
    • varast hættur sem tengjast eðlisfræðilegum fyrirbærum í daglegu lífi
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.