Í áfanganum er lögð áhersla á einfalda enska málfræði s.s. greini, tölu, kyn, tíðir, sagnbeygingar, forsetningar, stigbreytingu lýsingarorða og fornöfn. Unnið er að því að rifja upp og byggja ofan á þá kunnáttu og færni sem nemendur hafa. Grunnmálfræði verður þjálfuð með ritæfingum, gagnvirkum forritum og myndefni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum málfræðireglum í enskri tungu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita grundvallarreglum um ritað og talað mál
beita málfari við hæfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tala og skrifa málfræðilega rétta einfalda ensku
skilja daglegt mál
Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.