Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496315099.78

    Fræðslumyndir framhald sérnám
    FRÆÐ1FH02(SN)
    1
    Fræðslumyndir
    Framhald
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Í þessum áfanga er markmiðið að nemendur horfi á fjölbreytt úrval fræðslumynda og læri að taka við fróðleik í gegnum þann miðil. Nemendur taka þátt í að velja viðfangsefni eftir áhuga hvers og eins og markvisst er unnið að því að hafa efnið sem ólíkast og fjölbreyttast. Í lok hverrar fræðslumyndar talar hópurinn saman um það sem fyrir augu bar og loks er unnið verkefni um fræðslumyndina sem kennari útbýr.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tilvist fræðslumynda og að þar sé hægt að komast yfir ýmsan fróðleik
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • einbeita sér að því að horfa á fræðslumynd
    • taka þátt í umræðum um hverja mynd
    • sýna myndum áhuga sem bekkjarfélagar velja
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • njóta fræðslumynda
    • taka þátt í umræðum um ýmis konar málefni
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.