Í þessum áfanga er markmiðið að nemendur fái innsýn í norræna goðafræði og er notast við kennslubókina Óðinn og bræður hans. Nemendur fá innsýn í okkar forna menningararf.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
norrænni goðafræði eins og kostur er
tilurð heimsins samkvæmt goðafræðinni
persónum goðafræðinnar
ólíkum heimum goðafræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina í sundur helstu persónur og leikendur goðafræðinnar
endursegja lesið efni
taka þátt í umræðum um goðafræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
njóta okkar forna menningararfs
bæta orðaforða sinn
lesa sér til ánægju
Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.