Stefnt er að því að þjálfa hug og hönd nemenda með markvissum vinnubrögðum í tengslum við útsaum. Áhersla er lögð á þjálfun í fínhreyfingum og samhæfingu. Nemendur fá tækifæri til að auka færni sína sem getur nýst í daglegu lífi, tómstundum eða á vinnustað. Með handverki eykst sjálfsöryggi og sköpunar- og vinnugleði er örvuð. Leggja skal áherslu á að efla hugmyndaflug nemenda, sjálfstraust og frumkvæði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum útsaumi
formum, litum, notagildi og listrænu yfirbragði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vandvirkni og frágangi
fínhreyfingum og samhæfingu
útsaumi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hagnýta þau vinnubrögð sem hann hefur lært í starfi og tómstundum