Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1496320630.5

    Handmennt þæfing sérnám
    HAND1ÞÆ02
    6
    handmennt
    Þæfing
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Stefnt er að því að þjálfa hug og hönd nemenda með markvissum vinnubrögðum í tengslum við þæfingu. Áhersla er lögð á þjálfun í fínhreyfingum og samhæfingu. Nemendur fái tækifæri til að auka færni sína sem getur nýst í daglegu lífi, tómstundum eða á vinnustað. Með handverki eykst sjálfsöryggi og sköpunar- og vinnugleði er örvuð. Leggja skal áherslu á að efla hugmyndaflug nemenda, sjálfstraust og frumkvæði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hægt er að forma og vinna fjölbreytt handverk úr kembdri ull með því að þæfa hana
    • formum, litum, notagildi og listrænu yfirbragði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vandvirkni og frágangi
    • fínhreyfingum og samhæfingu
    • að forma hluti í ull
    • að þæfa ull á borði og í höndum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hagnýta þau vinnubrögð sem hann hefur lært í starfi og tómstundum
    Símat.