Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á bakstur og fá nemendur að kynnast brauð-, köku- og smákökubakstri.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnaðferðum sem notaðar eru við bakstur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fara eftir uppskriftum
baka fjölbreyttar brauð- og kökutegundir úr öllu algengu hráefni
nota heimilistæki við bakstur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita helstu bakstursaðferðum eins og kostur er
nýta helstu miðla til að afla upplýsinga um bakstur og uppskriftir eins og kostur er
viðhafa vönduð vinnubrögð við eldhússtörf og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur