Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497260648.0

    Heimilisfræði hollustan og velferð sérnám
    HEFR1HO02
    13
    Heimilisfræði
    Hollusta og velferð
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á hollustu og því verða eldaðir einfaldir grænmetisréttir, bakað úr grófu korni o.s.frv.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hollu mataræði og heilsusamlegum eldunaraðferðum
    • grunnaðferðum sem notaðar eru við eldamennsku og bakstur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina á milli hollra og óhollra rétta
    • fara eftir uppskriftum
    • elda einfaldan heimilismat
    • nota helstu heimilistæki við eldamennsku
    • leggja á borð
    • vaska upp, þurrka og ganga frá eftir máltíð
    • viðhafa góða borðsiði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • elda einfalda grænmetisrétti
    • baka úr grófu korni
    • auka sjálfstæði sitt og færni við matargerð
    • nýta helstu miðla til að afla upplýsinga um bakstur og uppskriftir
    • viðhafa vönduð vinnubrögð og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur
    Símat.