Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497261328.44

    Heimilisfræði pakkamatur sérnám
    HEFR1PM02
    14
    Heimilisfræði
    Pakkamatur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Námið er verklegt og fer fram í kennslueldhúsi. Stefnt er að því að búa nemendur sem best undir að bjarga sér við heimilisstörf. Í áfanganum er megináherslan lögð á að nemendur læri að elda og baka einfalda rétti úr pökkum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnaðferðum sem notaðar eru við eldamennsku og bakstur á pakkamat
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa á vöruumbúðir
    • fara eftir uppskriftum
    • elda einfalda rétti úr pökkum
    • baka einfaldar kökur úr pökkum
    • nota helstu heimilistæki við eldamennsku
    • leggja á borð
    • vaska upp, þurrka og ganga frá eftir máltíð
    • viðhafa borðsiði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér einfaldan pakkamat til að auðvelda sér eldamennsku
    • beita helstu eldunar- og bökunaraðferðum
    • viðhafa vönduð vinnubrögð og sýna fram á góða umgengni og frágang í samræmi við hreinlætiskröfur
    Símat.