Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497264201.25

    Heimspeki hversdags heimspeki sérnám
    HEIM1HH02
    1
    heimspeki
    hverdagsheimspeki
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Eitt helsta markmið heimspekikennslunnar er að efla gagnrýna og skapandi hugsun. Markmiðið byggir á þeirri forsendu að iðkun heimspeki þjálfi hugsunina og læsi í víðum skilningi. Áhersla er lögð á að fá nemendur til að hugsa, spyrja, velta upp ýmsum möguleikum fordómalaust, mynda sér skoðanir og rökræða við aðra af þolinmæði og á jafnréttisgrundvelli.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi einbeitingar í daglegu lífi
    • mikilvægi samstarfs
    • skoðanaskiptum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • álykta
    • hlusta á virkan hátt
    • deila upplifunum
    • treysta á öll skynfæri
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í samstarfi
    • mynda sér sjálfstæðar skoðanir
    • sýna öðrum þolinmæði
    • efla hugmyndaflug sitt
    • temja sér skipulega hugsun
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.