Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Saga landnám Íslands sérnám
Landnám Íslands
SN
Nemendur kynnist upphafi byggðar á Íslandi og lífsháttum á landnámsöld. Þeir öðlast innsýn í trúarbrögð, atvinnuhætti og stjórnskipan þessa tíma.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvers vegna og hvernig landið byggðist
- gæðum lands við landnám
- trúarbrögðum og hefðbundinni sögu af kristnitöku á Alþingi
- atvinnuháttum og ýmsum siðum á landnámsöld
- stjórnskipan á landnámsöld
- sögum af fundi Íslands og nokkrum landnámsmönnum, þar á meðal í heimabyggð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig um upphaf byggðar á Íslandi
- bera saman lífshætti á landnámsöld við lífshætti í dag
- koma kunnáttu sinni á framfæri munnlega, skriflega eða í myndsköpun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera meðvitaður um upphaf sögu lands og þjóðar
- geta metið samtímaatburði í sögulegu ljósi eins og kostur er
Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.