Í þessum áfanga er markmiðið að nemendur fái innsýn í Njálu. Sagan er lesin á léttlestrarformi. Nemendur kynnast heimi Íslendingasagna með því að lesa og ræða söguna út frá söguþræði og persónum sem og sögusviði, atvinnuháttum og daglegu lífi fyrr á tímum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
heimi Íslendingasagna
Njálu, sögusviðinu og persónum sögunnar
mikilvægi lestrar
mikilvægi þess að geta unnið aðalatriði úr texta á skýran og markvissan hátt
því hvernig skáldsaga getur endurspeglað samfélagið hverju sinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja lesinn texta
endursegja lesið efni
taka þátt í umræðum um bókmenntir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þekkja að einhverju leyti heim Íslendingasagna
njóta íslenskrar sagnahefðar
auka lestrarhæfni sína
dýpka lesskilning sinn
bæta við orðaforða sinn og almennan hugtakaskilning
lesa sér til ánægju
auka skilning sinn og þekkingu á samfélaginu og mannlegu atferli og samskiptum í gegnum bókmenntir
Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.