Í þessum áfanga vinna nemendur með einfalda grunnþætti íslensk máls. Námið er einstaklingsmiðað og unnið er út frá getu hvers nemanda. Markmið í lok áfangans er að nemendur þekki og geti skrifað stafina, þekki og geti lesið og skrifað þriggja til fimm stafa orð og geti parað orð og mynd. Áhersla er á að kenna grunnþætti í lestri, tengingu stafa og lesturs á einföldum orðum. Einnig er áhersla lögð á að nemendur örvist í allri málnotkun og bæti orða-forða sinn og hugtakaskilning.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
bókstöfunum
tengsl bókstafa og hljóða
að hlusta eftir ákveðnum hljóðum
tengslum ritmáls og lestrar við talmálið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja alla stafina og geta skrifað þá
greina sundur hljóð og bókstafi
greina einföld orð með eða án fyrirmyndar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa og skilja einföld orð
þekkja einföld orð og geta tengt við mynd
nota talað mál eins og kostur er
auðga orðaforða sinn og bæta hugtakaskilning
skoðar bækur að eigin frumkvæði
taka þátt í tjáskiptum
Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.