Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497277302.2

    Landafræði Ísland sérnám
    LAND1LÍ04
    8
    landafræði
    Ísland
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    SN
    Áfanginn fjallar um landafræði Íslands, legu þess og hafið umhverfis landið. Skoðuð er jarðfræði landsins og hvernig veðurfar hefur haft áhrif á gróðurfar og landslag í gegnum aldirnar. Áhersla er lögð á að nemandi þekki helstu landshluta og örnefni tengdum þeim, að hann þekki höfuðáttirnar og getið lesið af landakorti.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnatriðum í jarðfræðisögu Íslands
    • þróun veðursfars og áhrif þess á landið
    • helstu landshlutum Íslands
    • höfuðáttunum
    • legu landsins
    • landakorti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota hugtökin ísöld og hlýindaskeið
    • nota hugtökin jarðlög og berglög
    • beita þekkingu á áttum
    • finna landshluta og örnefni á landakorti
    • tengja einstök höf við kalda og hlýja hafstrauma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera upplýstur um land sitt og geta notið þess á ferðalögum
    • tengja almenna þekkingu við umræður um landið hverju sinni
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.