Meginmarkmið áfangans er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem þarf til að nýta sér stafræna tækni s.s. síma og Ipada til ljósmyndunar. Áhersla er lögð á að nemandi taki myndir úr umhverfi sínu, geti sent þær frá sér og/eða prentað þær út og unnið með myndefnið í verkefnavinnu. Lagt er upp með að nemandinn þjálfist í að gefa gaum að því smáa jafnt sem því stóra í umhverfi sínu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
myndavél og hvernig hún virkar
myndavél í síma eða spjaldtölvu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka myndir
færa eða senda myndir af vél í tölvu
prenta út myndir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka myndir og nýta í verkefnavinnu
senda vinum myndir á facebook
víkka út sjóndeildarhring og nýta sér þekkingu sem tómstundagaman
Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í verkefnagerð.