Námið er verklegt og fer að mestu leyti fram á þann hátt að nemendur vinna ákveðin verkefni þar sem þeir þurfa að tjá sig á myndrænan hátt. Þeir læra grunnatriði í myndsköpun s.s. teiknun, notkun lita, litablöndun, formfræði, grafík, málun o.fl. Leitast er við að gefa nemendum kost á að nota fjölbreyttar aðferðir og áhöld við myndvinnslu þannig að þeir þjálfist í að tjá sig á ólíkan máta. Áherslur eru einstaklingsbundnar, háðar myndrænni færni og formrænum skilningi hvers einstaks nemanda. Leitast er við að nota stafræna miðla þar sem það á við.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum verklegum grunnaðferðum við að tjá sig í myndum
hvernig mismunandi áhöld gefa mismunandi áferð, línur og form
sjónrænum þáttum í umhverfi sínu
einstaklings- og hópavinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka leiðsögn
vinna persónuleg verk
nota grunnþætti (liti, form, áferð, efni) í umhverfi sínu og beita þeim við útfærslu verka sinna
tjá sig um eigin verk og annarra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita helstu aðferðum í að tjá sig myndrænt
viðhafa vönduð vinnubrögð og sýna fram á góða umgengni og frágang