Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497353047.71

    Stærðfræði grunnstærðfræðitákn sérnám
    STÆR1GT03
    69
    stærðfræði
    Grunnstærðfræðitákn
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    SN
    Áfanginn tekur mið af nemendum sem hafa litla sem enga undirstöðu í stærðfræði. Kennt er að telja, lesa og skrifa tölustafi og vinna með einföld stærðfræðitákn. Stuðst er við sérhannað efni í bóklegu formi, tölvuforrit, kubba og leik. Kennslan er einstaklingsmiðuð.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tölustöfum og geta talið upp í tíu
    • einföldum stærðfræðitáknum og hugtökum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • telja upp í tíu
    • kunna tölustafina
    • nota stærðfræðitáknin plús, mínus og sama sem
    • leggja saman upp að tíu
    • draga frá undir tíu
    • greina í sundur ferhyrning, þríhyrning og kúlu
    • greina í sundur hugtökin „minna en“ og „stærra en“
    • greina í sundur hugtökin „mjórra en“ og „breiðara en“
    • greina í sundur hugtökin „færra en“ og „fleira en“
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja við almenna umræðu um stærðfræðihugtök
    • nýta í starfi að skóla loknum
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda við ýmis konar verkefnagerð.