Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497353989.8

    Textíll grunnur sérnám
    TEXT1GR02
    4
    textílhönnun
    Grunnur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    SN
    Námið er verklegt og fer fram í textílstofu. Stefnt er að því að kynna helstu aðferðir til að vinna með textíl. Jafnframt er textílvinna skoðuð sem leið að skapandi vinnu á sem fjölbreyttastan máta. Lögð er áhersla á að kanna tengingu textílvinnu við aðrar listgreinar svo sem leiklist og myndlist.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu aðferðum við vinnu með textíl
    • hvernig nota má textíl sem uppsprettu sköpunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla helstu smáverkfæri sem tilheyra vinnu í textíl
    • hafa með aðstoð unnið með stærri verkfærum sem tilheyra textíl eins og t.d. saumavélum og overlockvélum
    • vinna skapandi vinnu út frá textíl og með aðferðum textílvinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • viðhafa vönduð vinnubrögð við textílvinnu
    • nýta sér textíl og textílvinnu sem uppsprettu sköpunar
    Símat.