Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða í því skyni að búa þá undir þátttöku í atvinnulífinu. Áhersla er lögð á sjálfstæði og skipulagningu í vinnubrögðum. Einnig er áhersla lögð á að efla ábyrgð og frumkvæði í starfi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnuaðstæðum sem tilheyra ákveðnum störfum s.s. tæki og áhöld
eigin verkhæfni við ákveðin störf
eigin styrk- og veikleikum til að eiga betra með að velja sér starf við hæfi
umgengni og notkun á rafmagnshandverkfærum og öðrum handverkfærum eins og kostur er
helstu öryggisþáttum
vinnuaðstöðu og vinnuumhverfi
meðferð, notkunarsviði og virkni einstakra hand- og rafmagnsverkfæra
öryggisreglum einstakra hand- og rafmagnshandverkfæra
meðferð og notkun einstakra límtegunda
grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð svo sem lakks og annarra efna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
viðhafa skipulögð vinnubrögð
viðhafa sjálfstæð vinnubrögð
vinna eftir fyrirmælum
varast hættur sem fylgja viðkomandi starfi
tileinka sér sem bestan vinnuhraða ásamt úthaldi og einbeitingu
nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
nota algengustu hand- og rafmagnshandverkfæri
nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
bera yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: