Þjálfun í lestri og gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla og málmsmíðateikningar. Nemendur verði færir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.
TÖLT2AC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stöðlum sem gilda um teikningagerð
táknum og merkingum á teikningum, þ.e. hvaða upplýsingar þær hafa að geyma
þeim mælikvörðum sem algengir eru í smíða- og lagnateikningum
strikagerðum og strikaþykktum á teikningum og merkingum þeirra
reglur um málsetningar teikninga og notkun teiknileturs
framsetningu varpa og sniða
skástrikunum
samsetningateikningum
merkingu vinnslumerkinga, málvika, suðufúga og suðutákna
grundvallareglum við gerð útflatninga
grundvallareglum við gerð ísometrískra teikninga og kerfismynda
gerð samsettra teikninga og íhlutalista þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja stærð teiknipappírs, staðsetja teikningu, ákvarða hæfilega mælikvarða og aðra uppsetningu, setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo að hún sé nothæf til að smíða eftir
teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti samkvæmt upplýsingum framleiðenda (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
teikna útflatninga af sívalingum, strendingum, píramídum og breytistykkjum úr sívölu í rétthyrnt
teikna ísómetrískar teikningar af vélahlutum og kerfismyndir
gera efnis- og tækjalista eftir teikningum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa og teikna almennar teikningar sem gerðar eru eftir gildandi stöðlum um teikningar og notaðar eru í starfi vélstjóra við greiningu bilana og viðhald