Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497524275.15

    Starfsþjálfun á vinnustað
    STMV2FH15
    2
    Starfsþjálfun - málm- og véltæknigreinar
    Fyrri hluti
    Samþykkt af skóla
    2
    15
    Starfsþjálfun á vinnustað er skilgreindur hluti af námi á málm- og véltæknibraut. Starfsþjálfun er ætlað að þjálfa frekar hæfni nemenda á þeim sviðum sem nám þeirra á brautinni nær til. Á vinnustað fá þeir tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni við þær aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Nemendur kynnast af eigin raun þeirri menningu sem fyrir hendi er í íslenskum fyrirtækjum og eru beinir þátttakendur í henni. Gert er ráð fyrir að hverjum nema fylgi ferilbók þar sem grein er gerð fyrir þjálfun hans. Þeir verkþættir sem nemandi framkvæmir eru tíundaðir, mat lagt á framgöngu hans, verktækni, vinnuhraða og hæfni í viðkomandi iðngrein. Bera nemandi og atvinnurekandi eða fulltrúi hans sameiginlega ábyrgð á skráningu í ferilbók (sjá nánar um ferilbækur á vef Iðunnar http://www.idan.is/namssamningar/ferilbok).

    Um nám og kennslu í áfanganum gilda ákvæði reglugerðar nr. 840/2011 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.

    Þessi áfangi er sá fyrri af tveimur. Nemendur geta lokið honum samhliða námi við skóla.
    Æskilegt er að nemandi hafi lokið sem nemur tveggja anna námi á málm- og véltæknibraut. Hafa ber samráð við kennslustjóra vegna forkrafna fyrir vinnsutaðanám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim efnum sem unnið er með í málmiðnaði.
    • þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í málm- og véltæknigreinum.
    • meðferð spilliefna og úrgangs.
    • framleiðsluferli algengra smíðamálma, smíðahæfni, merkingum og efnisstöðlum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla málma, vélar og vélarhluta.
    • nota helstu handverkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein.
    • vinna við hand- og tölvustýrð tæki sem notuð eru á verkstæðum.
    • sjóða málma og velja suðutækni og -aðferð við hæfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa teikningar, málsetja, draga upp útflatninga, gera efnislista, meta efnisþörf og kostnað.
    • vera ávallt meðvitaður um þær hættur sem fylgja störfum í málmiðnaði og þær öryggiskröfur sem gerðar eru á vinnusvæðum.
    • skipuleggja verkferla, setja upp verkþáttaröð og verkáætlun og vinna samkvæmt henni.
    • eiga í samskiptum við aðra iðnaðarmenn, hönnuði, tæknifólk og verkkaupa. Hann þekkir skipulag vinnustaðanáms og hlutverk þess í námi hans.
    Námsmat er gert samkvæmt ákvæðum ferilbókar viðkomandi iðngreinar.