Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497538757.07

    Listaakademía - víðsýni
    LIAK1VS03
    2
    Listaakademía
    Víðsýni
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Ýmsar listgreinar fléttaðar inn í námið eftir áhuga kennara og nemenda og því listastarfi sem áberandi er í nærumhverfi skólans á hverjum tíma. Nemendur öðlast þekkingu á myndvinnslu og auglýsingagerð. Nemendur vinna við búningageymslu og karaktergerð í förðun og hári. Nemendur fá grunnþekkingu í tækni og vinnu í sviðslistum. Þá fá nemendur að kynnast ýmsum upphitunaræfingum og leikjum og aðferðum spunavinnu auk þess að læra grunntækni í raddbeitingu, framsögn og hreyfingum á sviði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • veggspjalda-, leikskrár- og leikhúsmiðagerð
    • flokkun búninga og leikhúsmuna í búningageymslu
    • framsögn, spunavinna, raddbeiting á sviði og hreyfingar á sviði
    • tónlistarflutningur og raddbeiting í söng
    • mikilvægi jákvæðrar nálgunar og samvinnu í skapandi starfi
    • helstu þáttum þess ferlis sem liggur til grundvallar fullbúnum sviðslistaverkum, frumsköpun verka, persónusköpun og útlitshönnun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • undirbúningsvinnu fyrir leiksýningu
    • karaktergerð í förðun og hári
    • að gera upphitunaræfingar
    • vinna styttri sviðslistaverk með hópi með ýmsum aðferðum
    • að beita hugmyndavinnu í útlitshönnun sviðslistaverka
    • að greina ferli sviðslista frá spuna og tilraunavinnu til fullbúinnar sýningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í skapandi hópastarfi af öryggi
    • beita nokkrum grunndvallaraðferðum í sköpun sviðslistaverka
    • taka þátt í umræðum um sviðslistir
    • taka þátt í skapandi verkefnum í skóla og umhverfi
    • frumkvæði nemanda endurspeglist í viðfangefnum verkefna hvers tíma
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.