Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1497604504.86

    Grunnáfangi
    ÍSAN1GR05(11)
    13
    íslenska sem annað mál
    Grunnáfangi
    í vinnslu
    1
    5
    11
    Grunnáfangi í íslensku fyrir nemendur með erlendan bakgrunn. Áhersla er á alla færniþætti tungumálanáms samkvæmt viðmiðunarramma Evrópuráðsins fyrir erlend tungumál (skilningur, talað mál og ritun). Viðfangsefni tengjast daglegu lífi. Nemendur lesa stutta texta og léttlestrarsögur. Unnið er með helstu atriði íslenskrar málfræði.
    Nemandi þarf að hafa lokið eins árs námi í íslenskum grunnskóla eða hafa lokið undirbúningsnámskeiði í íslensku.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu orðflokkum og beygingum
    • yfirhugtökum, andheitum og samheitum
    • orðaforða er tengist daglegu lífi og athöfnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa einfaldan texta með réttum framburði, áherslum og hrynjandi
    • greina lykilatriði og innihald í texta
    • beita einföldum málfræðireglum í töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig á einfaldri íslensku
    • nota íslenskt mál í námi og verkefnum
    • fara eftir munnlegum og skriflegum leiðbeiningum
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggir á því að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.