Þátttaka í uppsetningu leiksýningar í samvinnu leikhóps. Nemendur kynnast öllu ferlinu við undirbúning sýningar, taka að sér hlutverk eða vinna við aðra þætti, s.s. tónlistarvinnu eða útlitshönnun sýningar. Nemandinn fær markvissa þjálfun og tilsögn í ferlinu. Æfingatímabil verður 6-8 vikur og sýningar í kjölfar þess.
LIAK1VS03 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi störfum innan leikhússins
því verkferli sem viðkomandi er hluti af í sýningunni
því sem þarf til að leiksýning verði frambærileg
mikilvægi jákvæðra samskipta
menningarlegu hlutverki sviðslista
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita lausna og sýna frumkvæði
vinna náið með öðrum á uppbyggilegan hátt
finna til ábyrgðar á viðfangsefnum
nýta þau verkfæri sem nauðsynleg eru
tjá sig fyrir framan hóp
segja skoðanir sínar á hreinskiptinn hátt
beita virkri hlustun
taka við fyrirmælum og fara eftir þeim
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
axla ábyrgð á því hlutverki sem hann hefur tekið að sér
sýna sjálfsaga og vönduð vinnubrögð
vinna með öðrum á jákvæðan og skapandi hátt
geta sett sig í spor annarra
rökræða og komast að niðurstöðu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.