Þátttaka í uppsetningu leiksýningar í samvinnu leikhóps. Nemendur kynnast öllu ferlinu við undirbúning sýningar, taka að sér hlutverk eða vinna við aðra þætti, s.s. tónlistarvinnu eða útlitshönnun sýningar. Nemandinn fær markvissa þjálfun og tilsögn í ferlinu. Æfingatímabil verður 6-8 vikur og sýningar í kjölfar þess.
LIAK1VS03 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi störfum innan leikhússins
því verkferli sem viðkomandi er hluti af í sýningunni
því sem þarf til að leiksýning verði frambærileg
mikilvægi jákvæðra samskipta
menningarlegu hlutverki sviðslista
hvernig hægt er að hugsa leikverk út frá mismunandi sjónarhornum þeirra listamanna sem koma að uppsetningunni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita lausna og sýna frumkvæði
vinna náið með öðrum á uppbyggilegan hátt
finna til ábyrgðar á viðfangsefnum
nýta þau verkfæri sem nauðsynleg eru
tjá sig fyrir framan hóp
segja skoðanir sínar á hreinskiptinn hátt
beita virkri hlustun
taka við fyrirmælum og fara eftir þeim
skapa hugsun í eigin hugmyndavinnu sem og í hóp varðandi uppsetningu á leikverki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
axla ábyrgð á því hlutverki sem hann hefur tekið að sér
sýna sjálfsaga og vönduð vinnubrögð
vinna með öðrum á jákvæðan og skapandi hátt
geta sett sig í spor annarra
rökræða og komast að niðurstöðu
geta tekið virkan þátt í hugmyndavinnu að leikverki og ólíkum þáttum þess, hvort sem er sjálfstætt eða í hóp
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.