Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1498040209.7

    Grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt
    ÍÞRÓ1GL01
    35
    íþróttir
    grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt með áherslu á almenna grunnþjálfun. Í bóklegum og verklegum hluta áfangans er fjallað um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp og viðhalda þoli. Farið er yfir mismunandi þjálfunaráhrif á loftháðu og loftfirrtu þoli ásamt almennu og sérhæfðu þoli. Fjallað er um líkamsbeitingu við styrktarþjálfun, mikilvægi styrks fyrir stoðkerfi líkamans og farið yfir mismunandi þjálfunaraðferðir. Lögð er áhersla á að tengja saman fræðilega og verklega þætti. Einnig er farið yfir mikilvægi liðleika og liðleikaþjálfunar fyrir líkamann og áhrif liðleikaæfinga á vöðva og liðamót. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að meta eigin líkamsþrek. Nemendur fræðast markvisst um forvarnargildi íþrótta, líkams- og heilsuræktar og einnig um neikvæð áhrif vímuefna á líkamann. Verkefnavinna byggist á hvatningu til að efla andlega, líkamlega- og félagslega vellíðan sína til framtíðar. Nemendur geta valið um eftirfarandi leiðir: 1) Hefðbundnar íþróttir, líkams- og heilsurækt (kennsla í íþróttahúsi og kennslustofum Miðbæjarskólans og utandyra). 2) Skipulagða íþróttaiðkun innan íþróttafélags ásamt bóklegri kennslu (stunda íþróttagrein innan sérsambanda ÍSÍ, keppni á Íslandsmóti og æfa undir leiðsögn íþróttafræðings). Í öllum áföngum er minnt á mikilvægi svefns og slökunar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi upphitunar og liðleikaþjálfunar
    • styrktarþjálfun
    • fjölbreytni allra þátta til eflingar líkama og heilsu
    • þoli, uppbyggingu þess og mismunandi þolþjálfun
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
    • neikvæðum áhrifum ávana- og vímuefna á líkamann
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tileinka sér fjölbreytta gunnþjálfun allra þátta
    • taka þátt í almennri og sérhæfðri upphitun
    • taka þátt í markvissri þolþjáfun og sérhæfðri þolþjálfun íþróttagreina
    • taka þátt í markvissri og fjölbreyttri styrktarþjálfun
    • mæla þol, styrk og liðleika
    • taka þátt í æfingum og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
    • taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að eigin heilsueflingu
    • leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega þætti
    • mæla og meta eigið þol, styrk og liðleika
    • taka þátt í umræðu um ávana- og fíkniefni
    Símatsáfangi