Í áfanganum er lögð áhersla á sem flesta þætti í heildrænni líkams- og heilsurækt. Nemendur eru fræddir á markvissan hátt um líkams- og heilsuvernd til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju til æviloka. Nemendur útbúa eigin þjálfunaráætlun auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif reglubundinnar hreyfingar. Farið er yfir helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar svo sem starfsemi vöðva, liða, tauga og blóðrásar. Nemendur fá fræðslu um gildi þess að lifa heilbrigðu lífi og fá að kynnast fjölbreyttum möguleikum umhverfisins til íþrótta, líkams- og heilsuræktar. Lögð er áhersla á mikilvægi svefns og slökunar í nútíma þjóðfélagi ásamt upplýsingalæsi. Verkefnavinna byggist á að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og líkama.
Nemendur geta valið um eftirfarandi leiðir:
1) Hefðbundnar íþróttir, líkams- og heilsurækt (kennsla í íþróttahúsi og kennslustofum Miðbæjarskólans og utandyra).
2) Skipulagða íþróttaiðkun innan íþróttafélags ásamt bóklegri kennslu (stunda íþróttagrein innan sérsambanda ÍSÍ, keppni á Íslandsmóti og æfa undir leiðsögn íþróttafræðings).
ÍÞRÓ2LC01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi samhæfingar og tækni
mikilvægi slökunar
góðri líkamsbeitingu og -stöðu
helstu flokkum næringarefna og viðeigandi orkuneyslu
fjölbreyttum leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegu lífi
möguleikum í umhverfi og náttúru til líkams- og heilsuræktar
neikvæðum áhrifum áfengis-, tóbaks- og lyfjaneyslu á líkamann og heilsu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda líkams- og heilsurækt
þjálfa samhæfingu og tækni á markvissan og fjölbreyttan hátt
stuðla að tillitssemi og hvatningu
nota fjölbreyttar aðferðir til að mæla líkamsástand (þol, styrk, liðleika og púls)
stuðla að bættri líkamsbeitingu og -stöðu með æfingum og hreyfingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi eigin þjálfunar
mæla og meta eiginn styrkleika í líkams- og heilsurækt
taka þátt í umræðu um ávana- og fíkniefni
takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi mataræði og lifnaðarhætti