Í áfanganum er lögð áhersla á heildræna heilsueflingu. Farið er yfir gildi hreyfingar og mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að tengja saman andlega og líkamlega vellíðan. Þá er leitast við að auka meðvitund um hvað sé góð næring og skilja mikilvægi hennar til að viðhalda heilbrigði eða hvað gæti verið skaðlegt. Kennslustundir eru verklegar og bóklegar. Farið er yfir fjölbreytta möguleika til líkams- og heilsuræktar innan dyra sem utan. Lögð er áhersla á þjálfun(arform) með eigin líkama, boltum, mótstöðuteygjum, jóga, pilatesæfingum og að þjálfa núvitund og samkennd. Nemendur setja sér raunhæf markmið í líkams- og heilsurækt og vinna einstaklingsbundið og stjórna viðeigandi álagi. Verkefnavinna byggist á uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu.
Í öllum áföngum er minnt á mikilvægi svefns og slökunar.
ÍÞRÓ 1GH01, ÍÞRÓ 1GL01, ÍÞRÓ 2LC01, ÍÞRÓ2LD01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
framkvæmd og útfærslu æfinga fyrir alla vöðvahópa líkamans
þjálfun vöðva í kjarna líkamans (stoðkerfisvöðva)
uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu
forvarnargildi almennrar heilsuræktar
mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar
mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja einstaklingshæfð markmið
æfa slökun, liðleika og teygjur
æfa hreyfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu- og stöðu
gera styrktar- og þolæfingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér markmiðsetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni daglegs lífs
nýta tækifæri til þjálfunar og nota til þess fjölbreyttar aðferðir
takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl
stunda sjálfstæða líkams- og heilsurækt til framtíðar.