Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1498042016.34

    Þrek, knattspyrna, körfubolti og aðrir boltaleikir
    ÍÞRÓ2ÞB01
    11
    íþróttir
    Þrek og bolti
    Samþykkt af skóla
    2
    1
    Í áfanganum er lögð áhersla á heildræna heilsueflingu. Farið er yfir gildi hreyfingar og mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að tengja saman andlega og líkamlega vellíðan. Þá er leitast við að auka meðvitund um hvað sé góð næring og skilja mikilvægi þess til að viðhalda heilbrigði eða hvað geti verið skaðlegt. Verkefnavinna byggist á uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu. Kennslustundir eru verklegar og bóklegar. Farið er yfir fjölbreytta möguleika til líkams- og heilsuræktar innan dyra sem utan. Nemendur vinna saman í hópum í kennslustundum. Í öllum áföngum er minnt á mikilvægi svefns og slökunar.
    ÍÞRÓ1GH01, ÍÞRÓ1GL01, ÍÞRÓ2LC01 og ÍÞRÓ2LD01
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
    • framkvæmd og útfærslu æfinga fyrir alla vöðvahópa líkamans
    • þjálfunaráhrifum hópíþróttagreina
    • þjálfun vöðva í kjarna líkamans (stoðkerfisvöðva)
    • uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu
    • forvarnargildi almennrar heilsuræktar
    • mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar
    • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja einstaklingshæfð markmið
    • gera styrktar- og þolæfingar
    • æfa liðleika og teygjur
    • gera æfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu- og stöðu
    • taka þátt í íþróttum og þjálfun með jákvæðu viðhorfi, góðri samvinnu og heiðarleika að leiðarljósi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér markmiðssetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni
    • taka þátt í leikjum og þjálfunarformum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams- og heilsuræktar
    • takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl
    • stunda sjálfstæða líkams- og heilsurækt til framtíðar
    • bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð.