Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1503053368.53

    Þýska C
    ÞÝSK1ÞC05
    27
    þýska
    hlustun og ritun. menning og staðhættir þýskumælandi landa., lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er framhaldsáfangi og flokkast undir A2 skv. evrópska tungumálarammanum. Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun. Nemandi er farinn að lesa og skilja lengri samhangandi texta og samtöl. Nemandi getur tekið þátt í almennum samræðum og skrifað stutta texta. Nemendur nota grunnbækur, lesbók og vinnubók. Einnig lesa þeir stuttar sögur, syngja og leika. Notað er myndefni þar sem nemendur fá kynningu á landi og þjóð. Verkefni eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni. Lögð er áhersla á notkun upplýsingatækni.
    ÞÝSK1ÞB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu þýska málkerfisins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál og helstu samskiptavenjum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni, fylgja almennum munnlegum fyrirmælum og greina aðalatriði þegar fjallað er um afmörkuð efni
    • lesa margskonar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla á tiltölulega einfaldan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir
    • tjá sig á einfaldan hátt við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
    • tileinka sér aðalatriðin í frásögnum í fjöl- og myndmiðlum
    • fjalla um atburði, ímyndaða og raunverulega
    • geta metið eigið vinnuframlag og stöðu
    Nota skal fjölbreytt námsmat sem endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna. Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.