Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar. Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og virði höfundarétt. Örugg netsamskipti og siðferði á Netinu. Í áfanganum vinna nemendur með fjölbreytt verkefni sem reyna á sköpun og ímyndunarafl. Þeir læra að setja fram texta á skýran og læsilegan hátt. Í framsetningarforritum búa þeir til glærukynningu um sig sjálfa og kynna fyrir hópnum. Í ritvinnslu vinna þeir með texta af ýmsum toga og móta hann. Þeir setja upp ritgerðir með efnisyfirliti, töflu- og myndayfirliti.
Markmið námsins er að stuðla að færni nemenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð áhersla á að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu og samþætti kunnáttu í upplýsingatækni við framsetningu efnis við aðrar námsgreinar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu póst- og samskiptanetum
aðgerðir í helstu forritum til framsetningar og miðlunar á texta
textavinnslu og framsetningu texta
höfundarétti og notkun heimilda
siðfræði og siðferð Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
markvissri notkun póst- og samskiptaneta
mótun og framsetningu á texta á ýmsan hátt og átti sig á læsileika hans
aðgerðum í helstu forritum hugbúnaðar, svo sem framsetningu og ritvinnslu
meðferð heimilda og framsetningu á þeim
öruggum netsamskiptum
sjálfstæðum vinnubrögðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi)
vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðlað að læsileika hans
setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirliti, mynda- og töfluyfirliti
stunda örugg netsamskipti og sýni þar gott siðferði