Nemendur eru verklegum jóga- og þrektímum í íþróttasal. Viðfangsefnin sem tekin eru fyrir eru annars vegar jógaæfingar og stöður, pilates kvið- og bakæfingar, teygjur og slökun og hins vegar þrektímar þar sem unnið er með þol- og styrktaræfingar þannig að nemendur fái fjölbreytta þjálfun. Nemendur læra um ávinning hverrar æfingar og efla líkamsvitund sína.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gildi þess að þekkja líkama sinn og auka líkamsvitund sína
mikilvægi þess að styrkja sig jafnt andlega sem líkamlega
forvarnargildi líkamsræktar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera einfaldar jógaæfingar s.s. sólarhyllingu og aðrar grunn jógastöður
gera sér grein fyrir hvaða áhrif jógastöður hafa á líkamann
nýta sér slökun í daglegu lífi
nýta þrek og þolæfingar í bland við jógaæfingar til uppbyggingar líkamans
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
finna út hvaða heilsurækt hentar honum
geta bjargað sér sjálfur með einfaldar jógaæfingar
auka núvitund sína
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.