Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti á kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar. Nemendur fá þjálfun í fjölbreyttri ritun og tjáningu. Nemendur læra að meta góða málnotkun og öðlast trú á eigin málhæfni í ræðu og riti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi lestrar
mismunandi aðferðum við lestur
mikikvægi þess að geta áttað sig á aðalatriðum í texta
mikilvægi réttritunar
helstu hjálpargögnum við ritun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota mismunandi lestrartækni við lestur mismunandi texta
taka aðalatriði úr texta og átta sig á meginefni hans
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ákvarða hvaða lestraraðferðum skuli beitt við hinar ýmsu textagerðir
dýpka lesskilning sinn
styrkja eigin mál- og ritfærni
túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
endursegja lengri sögu á sannfærandi hátt og lýsa flóknum aðstæðum með skýrum og einföldum hætti án málalenginga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.