Í áfanganum eru tekin fyrir fjarskiptakerfi fyrir hærri tíðnir og fjallað um mismunandi stafrænar mótunar- og dreifingaraðferðir. Fjallað er um fjarskiptadreifikerfi þjónustuveitna og fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Fjallað er um fjarskiptalög og reglugerðir. Fjallað er um helstur burðarleiðar fjarskipta um landið og til og frá landinu. Kennd er notkun mælitækja til mælinga á boðskiptalögnum. Farið er í ljósleiðarakerfi og stærri dreifikerfi fjarskipta. Þá er fjallað um efnistöku, verðútreikninga, tilboðsgerð og úttektir er varðar fjarskiptalagnir og þjónustu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjarskiptakerfum fjarskiptafyrirtækja
fjarskiptalögum og reglugerðum
burðarleiðum fjarskipta um landið og til og frá landinu.
uppbyggingu farsímakerfa
uppbyggingu stafrænna fjarskiptakerfa
gervihnattamóttöku og meðferð slíkra merkja
dreifikerfum fyrir stafræn merki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina bilanir í fjarskiptakerfum
gera úttektir á fjarskiptakerfum
reikna út verð efnis og vinnu við fjarskiptakerfi
nota fjarskiptalöggjöf tengt vinnu við fjarskiptakerfi
greina merki farsímakerfa
greina þarfir fyrirtækja
setja upp og tengja gervihnattadisk
mæla og greina stafræn og hliðræn merki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta mælt og tekið út fjarskiptalagnir fyrirtækja
geta magntekið og áætlað vinnu við fjarskiptakerfi
geta greint merki hvort sem er á CAT kapli, ljósleiðara eða sammiðjukapli
geta mælt og greint merki farsímakerfa
geta skipulagt og ráðlagt um fjarskipti og boðskiptalagnir fyrirtækja
geta sett upp gervihnattadisk og stillt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.