Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1506526941.61

    Rafeindarásir og mælingar
    RABV2RE05(AV)
    1
    rafeindarásir og mælingar
    magnarar, mælitæki, sveiflusjár, transistorrásir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    AV
    Nemendur æfist í notkun mælitækja og geri sér grein fyrir áhrifum mælitækja á virkar rásir. Nemendur vinni verkefni við einfaldar transistorrásir, æfist í mælingum með AVO mæla og sveiflusjár. Nemendur geri sér grein fyrir hvaða áhrif innri viðnám mælitækja hafa á áhrif mælinga. Nemendur læri að setja upp einfaldar rafeindarásir s.s. transistormagnara og aðgerðarmagnara í mismunandi tengingum og geri mælingar til glöggvunar á virkni. Nemendur læri um sveifluvaka og virkni helstu gerða. Nemendur þjálfist í teikningalestri rafeindarása og í notkun hermiforrita. Lögð er áhersla á að nemendur læri að sækja upplýsingar á internetið og nýta þær. Nemendur læri um praktíska notkun rása og hvernig þær nýtast í almennum tækjabúnaði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni AVO mæla og sveiflusjá
    • áhrif mælitækja á virkar rásir
    • virkni transistorrása
    • virkni mismunandi tengimáta transistorrása, CE, CB, CC.
    • virkni rása með aðgerðarmagnara og mismunandi tengimáta.
    • mikilvægi rétts frágangs á jarðbindingum í smáspennurásum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • prófa rafeindarásir í hermiforriti
    • yfirfæra rafeindarás af teikningu yfir á tengibretti.
    • mæla virkar rafeindarásir og draga ályktanir
    • nota internetið til öflun upplýsinga um rásir og íhluti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hanna einfalda transistorrás í stað bilaðrar rásar.
    • hanna einfalda transistorrás inn í stærra kerfi með skilyrta hegðun.
    • mæla og bilanagreina virka rafeindarás
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.