DIN skinnu, eðlisfræði íhluta, hermiforrit, rafeindarásir
Samþykkt af skóla
2
5
AV
Í þessum áfanga er lögð áhersla á hönnun og smíði rafeindarása til að taka við boðum
og stýra ytri búnaði. Kennd er hönnun og smíði samsettra rafeindarása og veitt innsýn í eðlisfræði íhluta. Smíðaðar eru einingar til að taka við merkjum frá skynjurum og til aflstýringar á orkufrekum tækjum. Farið er í uppröðun og tengingar á tilbúnum iðnaðarreglunareiningum á DIN skinnu og gengið frá kassa með búnaði á DIN skinnu í samræmi við staðla og ákvæði reglugerða. Farið er í
fínlóðningar með yfirborðsásetta íhluti (SMD) og kennd tækni við að skipta út íhlutum með mörgum tengingum. Farið er í kynnisferðir í framleiðslufyrirtæki. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og notkun hermiforrita.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
prentplötugerð og mikilvægi rýmda og spans í rásum.
helstu verkfærum fyrir rásasmíði.
merkingum og stöðlum yfirborðslóðaðra íhluta (SMD)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leggja tölvuteiknaða rafeindarás á prent
æta eða fræsa prentplötur með ljósfilmu
lóða SMD íhluti á prent
aflóða SMD íhluti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna og teikna rafeindarásir í þar til gerðu teikniforriti
hanna prentplötu út frá skematískri teikningu
sannreyna virkni rásarinnar í hermiforriti
lóða upp rásina með hvort heldur sem er gegnumgangsíhlutum
sannreyna virkni rásarinnar með mælitækjum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.