Starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandinn beitir þeirri þekkingu og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu og býr sér í haginn fyrir sveinspróf. Að lokinni starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu verksviðum fagsins
helstu suðu- og samsetningaraðferðum
helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið
helstu gæðakröfum sem snerta fagið
eiginleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgja fyrirliggjandi verkáætlun og hönnunargögnum
vinna í samræmi við áætlanir um tíma og kostnað
vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi
vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt að verkefnum sem honum eru falin
leggja mat á verkáætlun og hönnunargögn vegna verksins
meta gæði verks með hliðsjón af lögum, reglugerðum og stöðlum
gera grein fyrir notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.