Að nemendur búi yfir færni og þekkingu til þess að geta unnið með timbur. Þekkja helstu galla og kosti þess við hönnun á hinum ýmsu viðfangsefnum. Geta notfært sér timbur við útfærslu á vinnu þeirra í áfanganum sem og í framtíðinni, þar á meðal tenging við önnur efni. Þekki þá öryggisþætti sem við kemur vinnu með timbur og þeim vélum og verkfærum sem til þess þarf.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu viðartegundum sem notaðar eru við hin ýmsu verkefni
Kostum og göllum hinna ýmsu viðartegunda
Kostum og göllum á algengum samsetningum á timbri
Undirstöðuatriðum í teikningalestri
Takmörkun mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun úrgangs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Geta skipulagt og framkvæmt eigin hugmyndir
Lesa einfaldar teikningar
Bera ábyrgð á efnisvali og annast birgðahald þeirra efna sem nota skal við framkvæmdina
Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana, teikningar, efnisval og annað sem hefur áhrif sé sett upp á skipulegan og aðgengilegan máta
Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til úrbóta
Geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál
Skrifleg skýrsla um hvert verkefni og verkefnaskil.
Einnig verður tekið til mats:
• Frumkvæði, frumleg hönnun
• Vinnusemi
• Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur
• Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína