kraftar og sveiflumyndun, uppbygging og slitfletir véla
í vinnslu
3
5
Nemandinn þjálfast í keyrslu vélarúms og vélbúnaðar. Með vélhermum kynnist nemandinn daglegum rekstri vélarúms, frá köldu skipi til fullrar aflnotkunar. Viðbrögð við bilunum þjálfuð. Nemandinn ræsir allan búnaði vélarrúmsins og rekur vélarrúmið með hjálp viðvörunarkerfa hermisins í tilgreindan tima. Nemandinn bregst við gangtruflunum, greinir bilanir og kemur búnaðinum í rétt horf.
Nemandinn öðlast hagnýta verklega þjálfun við stjórn á brunavél ásamt viðeigandi stoðkerfum í vélarhermi.
Nemendur annast allan daglegan rekstur vélarrúms frá stjórnstöð, sinna bilanagreiningu og nýta sér upplýsingar frá framleiðendum, afgasvaka og viðvörunarkerfi til að tryggja öruggan rekstur vélarúmsins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stjórntækjum vélarúmshermis
daglegum rekstri vélarúms og hjálparbúnaðar
virkni og uppbyggingu véla og vélbúnaðar, svo sem stýrisvéla, sjó- og ferkvatnsdæla, ferskvatnseimis og rafmagnsframleiðslu
hvernig véladagbók er færð og notuð
Skildum vakthafandi vélstjóra og hvernig örugg samskipti milli brúar og vélrúms fara fram
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
ræsa og stöðva einstök tæki vélarrúmsins og stoðkerfa þess í vélarúmshermi á þann hátt að tækjum og búnaði verði ekki misboðið og að
forgangsraða á eðlilegan hátt vinnu í vélarúmi
tímasetja verk miðað við aðstæður
afla upplýsinga um ástand vélbúnaðar og stoðkerfa
vinna með öðrum stjórnendum að viðbrögðum og hættum sem upp geta komið varðandi búnað og öryggi skips
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
standa vaktir í vélarúmi og bregðast við bilunum og áreiti varðandi búnað
taka ákvarðanir um stjórntök eða viðbrögð við óeðlilegu ástandi vélbúnaðar eða stoðkerfa og gert viðeigandi ráðstafanir
nota kerfismyndir og handbækur sem hjálparbúnað við bilanagreiningu og viðbrögð við bilunum
vinna sjálfstætt og taka frumkvæði sem vélstjóri
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.