Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507645567.27

    Leiðtogaþjálfun
    LEIÐ1SV03
    1
    Leiðtogaþjálfun
    Sjálfsþekking og verkefnastjórnun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Farið verður yfir helstu þætti sem skipta máli varðandi skipulag, uppbyggingu, samvinnu, samábyrgð og leiðtogastörf meðal jafningja í námi og félagslífi. Einnig þætti eins og stjórnun fjármála, verkefnastjórnun, jafnrétti, kynhlutverk, lýðræðisleg og sjálfstæð vinnubrögð og aðra áhersluþætti í skólastarfinu. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun, félagsfærni, sjálfþekkingu og aðra þætti sem hafa áhrif á samskipti og að styrkleikar hvers og eins fái að njóta sín. Áfanginn er einstaklingsmiðaður því hlutverk hvers nemanda innan nemendahópsins og samfélagsins er mismunandi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • samfélagslegum gildum, siðgæði, mannréttindum og jafnrétti
    • áhrifum fyrirmynda og staðalímynda á eigin ímynd og lífstíl
    • vinnulagi sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám og störf
    • áhrifum eigin hugafars og félagsfærni á samskipti við annað fólk
    • fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í daglegu lífi
    • þeim þáttum sem tengist því að vera ábyrgur þátttakandi í samfélaginu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig á skýran og skapandi hátt
    • skipuleggja einfalt vinnuferli og beita viðeigandi tækni í því sambandi
    • vinna sjálfstætt að verkefnum
    • taka þátt í samræðum, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
    • vinna með félags- og samskiptafærni sína
    • vinna með sjálfsþekkingu sína og styrkleika
    • framkvæma hugmyndir sínar
    • beita skapandi hugsun
    • vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
    • umgangast umhverfi sitt með sjálfbærni í huga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá hugsanir sínar og tilfinningar í rökréttu samhengi
    • virkja sínu sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
    • geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
    • sýna lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti virðingu
    • vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu nær- og fjærsamfélagi
    • gera sér grein fyrir nýjum tækifærum í umhverfinu
    • tengja þekkingu sína og leikni við starfsumhverfi og daglegt líf