Markmið áfangans er að kynna nemandanum innviði skólans, námsval, starfshætti, nám og félagslíf. Nemandinn er búinn undir þátttöku í samfélaginu með því að efla félagslega færni og siðferðiskennd. Lögð er áhersla á að efla samskipti og jákvæða lífssýn nemandans sem auðveldar honum að takast á við kröfur og ögranir daglegs lífs. Jafnframt er lögð áhersla á að gera hann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur gagnvart sjálfum sér og skólasamfélaginu. Í áfanganum er stuðlað að styrkingu félagstengsla milli nemenda og þeir búnir undir að takast á við krefjandi nám og leggja þannig grunn að frjóu menntasamfélagi. Nemandinn eflist í að koma fram af virðingu við aðra í fjölbreyttu þjóðfélagi. Nemandinn fær tækifæri til að vinna við margvísleg viðfangsefni á fjölbreyttan og skapandi hátt. Um er að ræða verkefnabundið nám með áherslu á samvinnu og frumkvæði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kröfum sem gerðar eru í námi í framhaldskóla
þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra
framtíðarmöguleikum sínum
mikilvægi markmiðasetningar og leiðum að settum markmiðum
skólasamfélaginu, námsvali og stoðþjónustu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bera virðingu fyrir sjálfum sér
sýna umburðarlyndi, samhyggð og virðingu fyrir öðrum
tjá sig í töluðu og rituðu máli
verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika
leita upplýsinga um nám sitt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
auka færni sína í mannlegum samskiptum
meta eigin vinnubrögð
bæta ákvörðunartöku í daglegu lífi
taka þátt í samfélagi sem er í sífelldri þróun
bera ábyrgð á eigin námi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.