Lífsleikni með áherslu á fjölmiðla, tjáningu og samfélagið
LÍFS1FL01
61
lífsleikni
fjölmiðlar og líðandi stund
Samþykkt af skóla
1
1
AV
Í áfanganum er leitast við að styrkja nemandann sem einstakling, námsmann og efla virkni hans í skólasamfélaginu. Lögð er áhersla á að styrkja samkennd nemandans, sjálfstraust og öryggiskennd hans innan og utan skóla. Unnið er með skólareglur, umgengni og námsvenjur. Unnið með mikilvægi þess að taka ábyrgð á sjálfum sér og eigin líðan. Notast við efni úr fjölmiðlum sem úrvinnluþætti og umræðuefni um atburði líðandi stundar og unnið með dægurmál dagsins í dag.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
mikilvægi þess að axla ábyrgð á sjálfum sér innan og utan skólasamfélagsins
fjölbreytileika
eigin tilfinningum og skoðunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita gagnrýninni hugsun
virða skoðanir annarra
bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
taka þátt í umræðum
láta skoðanir sínar í ljós
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
átta sig á framsetningu efnis í fjölmiðlum og gagnsemi fjölmiðla
taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA