Áfanginn er verklegur og fer fram í íþróttasal eða utandyra. Áhersla er lögð á grunnþættina þol, styrk og liðleika og nemendur gera ýmsar æfingar á stöðvum sem auka þessa þætti. Leitast verður við að æfingar hæfi getu og áhuga hvers og eins. Farið verður í æfingar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann
að fara ekki of geyst af stað
að ýmsar hættur geta leynst í tækjasal
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota fjölbreytt líkamsræktartæki
gera fjölbreyttar æfingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu
bæta líkamsástand sitt
sækja tíma í líkamsræktarstöðvum og nýta sér þjónustu þeirra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.