Í áfanganum kynnist nemandinn mismunandi sundaðferðum og æfir þær. Áhersla verður lögð á tæknina að baki hverri sundaðferð og hvernig efla má úthald. Nemandinn fær leiðsögn við ýmsar tækniæfingar er varða sund og fær þjálfun í að synda með og án hjálpartækja.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að sund styrkir líkamann og eykur úthald og þrek
að sund er holl og góð hreyfing fyrir líkamann
að sundið getur verið skemmtileg tómstundaiðja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
koma sér yfir laug með eða án hjálpartækja
beita tækni varðandi fótatök, handahreyfingar, legu og öndun
bæta úthald sitt
þekkja reglur sem gilda á sundstöðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fara í sund og synda það sund sem hæfir getu og/eða áhuga
synda sér til heilsubóta
æfa sund hjá sundfélagi
fara eftir reglum sem gilda á sundstöðum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.