Í áfanganum kynnist nemandinn útivist, fjölbreyttum gönguleiðum, hreyfingu og útbúnaði sem mikilvægur er í stuttar göngur. Nemandinn fær fræðslu um mikilvægi hreyfingar á líkamlega og andlega heilsu til framtíðar. Þá er leitast við að þjálfa úthald, styrk og liðleika nemandans og sýna honum leiðir til að viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðrar heilsu fyrir framtíðina
hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
nota snjalltækni til að kortleggja útivistina
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.